Teriyaki-kjúklingurÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Já - Slög: 7611 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Teriyaki-kjúklingur. 1 kíló kjúklingalæri 2 desilítrar teriyakisósa 1 matskeið ferskur engifer, rifinn 2 gulrætur 1 kúrbítur 1 rauðlaukur 1 matkseið olía 1 desilítri kjúklingasoð eða kjúklingakraftur 1 teskeið sykur 2 teskeiðar sítrónusafi Aðferð fyrir Teriyaki-kjúklingur: Setjið kjúklingalærin í eldfast mót, með skinnið niður. Blandið sósuna með engifer og hellið henni yfir kjúklinginn. Látið þetta standa í cirka 4-6 tíma. Snúið kjúklingnum. Eldið í miðjum ofni í cirka 50 mínútur við 200 gráður. Skerið gulræturnar og kúrbítinn í stöngla. Skerið laukinn í báta. Steikið grænmetið á pönnu, í olíu. Bætið sykri og soði við. Látið þetta malla í 3-4 mínútur. Berið fram með kjúklingnum. þessari uppskrift að Teriyaki-kjúklingur er bætt við af Sylvíu Rós þann 26.03.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|