Tartaletturform með skötuselÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4725 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Tartaletturform með skötusel. Skötuselur cirka 300 grömm í litlum bitum Púrrlaukur, 10 cm smátt skorinn Paprika rauð, meðalstór, smátt skorin Sveppir ½ box, smátt skornir Hvítlaukur, 3 geirar 2 teskeiðar steinselja Nýmalaður pipar Herbamare salt eftir smekk 25 grömm smjör 1 matreiðslurjómi Maizena 8 tartalettuform Aðferð fyrir Tartaletturform með skötusel: Setjið skötuselinn í skál. Hvítlaukur, steinselja, pipar og salt hrært vel saman við. Smjörið er brætt á pönnu og fiskurinn í kryddblöndunni svissaður létt. Grænmetinu skellt út á og allt svissað létt saman. Grænmetið á ekki að maukast. Rjómanum hellt yfir og suðan látin koma upp. Gott er að þykkja smá með Maizena. Réttinum er skipt í 8 tartalettuform og þau bökuð í 200 gráðu heitum ofni, í 5 mínútur. Berið fram með salati og lime. þessari uppskrift að Tartaletturform með skötusel er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|