Sherrý-frómasÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 11647 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Sherrý-frómas. 8 egg 10 matskeiðar sykur 6 matskeiðar sherrý 12 blöð matarlím 1 líter rjómi 2 pakkar makkarónukökur bleyttar í 2 desilítrum af sherrý Aðferð fyrir Sherrý-frómas: Þeytið rjómann og geymið. Þeytið saman egg og sykur. Leggið matarlímið í kalt vatn í 10 mínútur og vindið það svo. Bræðið matarlímið í 6 matskeiðum af sherrý. Kælið aðeins og setjið í eggjahræruna. Bætið þeytta rjómanum út í og að lokum uppbleyttu makkarónukökunum. þessari uppskrift að Sherrý-frómas er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 22.12.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|