Salat með kjúkling og mangoÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 5496 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Salat með kjúkling og mango. 1 stór soðinn kjúklingur 2 lárperur 1 stórt mangó 12-20 soðnar rækjur Handfylli ristaðar pekanhnetur 3 salathöfuð, etv. hjartasalat skorið í strimla 1 búnt karsi 2 matskeiðar sítrónusafi eða cideredikk 3 matskeiðar lárperuolía Salt og pipar Handfylli baunaspírur Aðferð fyrir Salat með kjúkling og mango: Hamflettið kjúklinginn og skerið kjötið í væna bita. Setjið það í stóra skál. Skerið lárperurnar í tvennt og takið steininn úr. Skafið innmatinn úr og skerið hann í teninga. Setjið hann í skálina. Skrælið mangóið og skerið það í stóra bita. Setjið þá einnig í skálina ásamt rækjum, pekanhnetum, salati og karsa. Stráið baunaspírunum yfir. Blandið sítrónusafa og lárperuolíu saman, smakkið til með salti og pipar og berið fram sem dressingu. þessari uppskrift að Salat með kjúkling og mango er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|