RisahörpudiskurÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 0 - Fitusnautt: Já - Slög: 4424 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Risahörpudiskur. 8 risahörpudiskar 8 sneiðar af ítalskri hráskinku (tegund eftir smekk) 6-8 matskeiðar af raspolíu 2 hvítlauksgeirar 16 stönglar ferskur aspas 1 bréf bökunarpappír Aðferð fyrir Risahörpudiskur: Risahörpudiskurinn er afþýddur og skinka er vafin utanum hann á hliðinni, þannig að ferskmeti hörpudisksins vísi upp. Olíu er hellt í litla skál og hvítlauksgeirar er maukaðir útí. Risahörpudiskunum er raðað á bökunarpappírinn og olía pensluð vel yfir (með hvítlauknum í). Aspasinn er einnig settur á bökunarpappírinn og penslaður með hvítlauksolíu. Þetta er haft um 5-8 mínútur inn í ofni, við 175 gráður. Flott er að raða aspas á milli tveggja hörpudiska á hvern forréttadisk. þessari uppskrift að Risahörpudiskur er bætt við af Helga Magnúsdóttir þann 21.01.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|