RækjusúpaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6202 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Rækjusúpa. 250 grömm ferskir sveppir 1 lítill laukur 50 grömm smjör til steikingar 3 matskeiðar hveiti 1 lítri kjötsoð (vatn+teningur) 1 teskeið salt, ½ teskeið pipar 2 desilítrar rjómi Smávegis koníak 2 eggjarauður Season All eftir smekk 150 grömm rækjur Steinselja til skrauts Aðferð fyrir Rækjusúpa: Hreinsið sveppina og skerið í sneiðar. Saxið laukinn. Steikið sveppina og laukinn í smjöri í potti. Hveiti stráð yfir og kjötsoðinu hellt saman við í smáskömmtum. Hrærið vel í á meðan. Salt og pipar sett út í. Látið krauma í 3-4 mínútur. Rjómanum hellt saman við og bragðbætt með koníaki eftir smekk. Hleypið upp suðu. Hrærið eggjarauðrnar með dálitlu af heitir súpunni. Hellið þeim svo varlega út í súpuna og hrærið vel í. Lækkið hitann áður því súpan má alls ekki sjóða eftir að eggjaruaðurnar eru komnar út í. Braðbætið eftir smekk. Rækjurnar setta út í. Loks er steinselja söxuð og stráð yfir. Berið fram með brauði. þessari uppskrift að Rækjusúpa er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|