PerubakaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4067 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Perubaka. Deig: 250 grömm hveiti 125 grömm sykur 125 grömm smjör 3 eggjarauður 1-2 möndludropar 125 grömm malaðar möndlur Fylling: 2-3 þroskaðar perur 1 matskeiðar sykur Salt Rifinn börkur af appelsínu Appelsínusafi 2 matskeiðar Armagnac 1 eggjahvíta 1 matskeið perlusykur 2-3 desilítrar rjómi, þeyttur Aðferð fyrir Perubaka: Sigtið hveitið á borð og gerið holu í miðjuna. Setjið eggjarauðu, smjör, sykur, möndludropa og möndlur í holuna og hnoðið vel saman, með hröðum handtökum. Látið deigið bíða í kæli í 1 klukkustund, (Þetta deig má einnig laga og geyma í frysti til betri tíma). Afhýðið perurnar og hreinsið kjarnan úr. Skerið þær svo í fjóra báta. Setjið bátana í skál og stráið sykri, appelsínusafa, appelsínuberki og víni yfir. Látið þetta standa í 30 mínútur. Hitið ofninn í 190 gráður. Fletjið 1/3 af deiginu út og skerið það svo út í hringlaga köku, (með sama þvermál og hringurinn er, sem baka á í). Skerið hring út úr miðju kökunnar, 6-8 cm. Fletjið út það sem eftir er af deiginu og klæðið hringmótið að innan með því. Raðið perubátunum í mótið með mjóa endann að miðju og leggið deiglokið yfir. Þrýstið deigbrúnunum vel saman. Bakið á neðstu rim í 35-40 mínútur. Takið bökuna úr ofninu 5 mínútum áður en bökunartíminn er liðinn og penslið hana með léttþeyttri eggjahvítunni og stráið yfir hana sykri. Bakið áfram í 5 mínútur. Látið bökuna kólna og takið hana úr mótinu. Létt þeytið rjómann og blandið safanum (sem perurnar lágu í) út í. Setjið rjómann í miðju bökunnar. Þessa böku má frysta full bakaða og láta svo þiðna við stofuhita í 6 klukkustundir. Hitið hana síðan í 10 mínútur við 175 gráður. þessari uppskrift að Perubaka er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 21.12.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|