PepperonirúllutertubrauðÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3996 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Pepperonirúllutertubrauð. 1 rúllutertubrauð 1 dós sýrður rjómi 2-3 matskeiðar majónes 100 grömm pepperoni 1 rauðlaukur ½-1 bolli ólífur Ítölsk kryddblanda Salt og pipar eftir smekk Rifinn ostur Aðferð fyrir Pepperonirúllutertubrauð: Saxið pepperoni, lauk og ólífur og hrærið það saman við majónes og sýrðan rjóma. Kryddið eftir smekk. Smyrjið blönduna á brauðið og rúllið því upp. Leggjið það á plötu með bökunarpappír og stráið rifnum osti yfir. Bakið í 20 mínútur við 180 gráður. þessari uppskrift að Pepperonirúllutertubrauð er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|