Núðlusalat með laxÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 4144 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Núðlusalat með lax. 4 laxasneiðar 2 rauðar paprikkur 2 vorlauksbúnt 250 grömm kínverskar núðlur Dressing: 1-2 matskeiðar saxað engifer 1 hvítlauksgeiri, rifinn 1 rauður chili, saxaður Rifinn börkur af 1 límónu Safinn úr 1 límónu 1 matskeið sykur 2 matskeiðar olía 1 matskeið fiskisósa Handfylli ferskur kóríander Etv. salt Skreyting ½ desilítri saltaðar hnetur Ferskur kóríander Aðferð fyrir Núðlusalat með lax: Grillið laxinn á báðum hliðum, við háan hita, í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Hreinsið paprikkurnar og skerið þær í 4 báta. Grillið þær í 8-10 mínútur, eða þar til þær verða mjúkar. Setjið þær í poka og látið þær bíða í 5 mínútur, rífið svo “skinnið” af. Pakkið vorlauknum í álpappír og grillið hann í cirka 8 mínútur. Blandið öllum hráefnunum í dressinguna saman. Rífið laxinn í bita og setjið hann í skál. Hellið dressingunni yfir. Skerið grænmetið í bita og stráið því yfir. Sjóðið núðlurnar og hellið þeim í skálina. Blandið öllu vel saman. Stráið hnetum og kóríander yfir og berið fram. þessari uppskrift að Núðlusalat með lax er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|