MarensbakaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 8 - Fitusnautt: Nei - Slög: 2566 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Marensbaka. 200 grömm heilhveitikex, t.d. digestive eða grahams 1 matskeið Cadbury’s kakó 50 grömm smjör, bráðið Súkkulaðifylling: 400 g Síríus Konsum 70% súkkulaði 2½ desilítri rjómi 3 eggjahvítur 180 grömm sykur Meðlæti: fersk ber Aðferð fyrir Marensbaka: Setjið kexkökur, kakó og smjör í matvinnsluvél og vinnið vel saman þar til úr verður fíngerð mylsna. Þrýstið mylsnunni á botninn á vel smurðu smelluformi eða pæformi (um 20 cm í þvermál), setjið formið í ísskáp og kælið í 15-20 mínútur. Súkkulaðifylling: Setjið súkkulaði og rjóma í pott og hitið við hægan hita þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Hellið blöndunni yfir kexbotninn og kælið áfram í 30 mínútur. Hitið ofninn í 200°C. Stífþeytið eggjahvíturnar í skál og bætið sykrinum smátt og smátt út í. Þeytið þar til blandan er orðin þykk, glansandi og kremkennd. Setjið marensinn ofan á bökuna með sleikju og bakið í 15 mínútur, eða þar til marensinn hefur stífnað. Kælið bökuna áður en hún er borin fram með ferskum berjum. þessari uppskrift að Marensbaka er bætt við af Dísa Jóns þann 30.12.09. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|