laxarúllurÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 4286 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að laxarúllur. Salt 4 sneiðar lax (reyktur) 1 biti lax 2-2 1/2 matskeið sinnep (milt) 2 matskeiðar sýrður rjómi 2 desilítrar fiskikraftur 2 matskeiðar majónes 2 matskeiðar dill Smá pipar Punt: Smá rækjur Dill Lime Krullsalat Aðferð fyrir laxarúllur: Hellið fiskikraftinum í pott og látið suðuna koma upp. Piprið og saltið fiskinn og setjið í pottinn, látið sjóða þar til hann er tilbúinn. Takið hann upp og hreinsið bein og roð frá, Setjið fiskinn í skál og hnoðið saman, hellið sýrðum rjóma, dilli, sinnepi og majónesi í skálina og hrærið saman við. Kryddið með salti og pipar. Rúllið 4 sneiðum af reyktum lax upp og pressið fyllingunni í gatið, leggjið rúlluna á disk og stráið puntinu yfir. þessari uppskrift að laxarúllur er bætt við af Sylvíu Rós þann 17.08.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|