Lambalæri með fyllinguÁrstíð: Sumar - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4707 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Lambalæri með fyllingu. 1 lambalæri 100 grömm fetaostur, grófmulinn 10-12 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir 3 matskeiðar furuhnetur 3 matskeiðar rautt pestó 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt 10-15 basilíkublöð, söxuð (má sleppa) 1 teskeið ferskt rósmarín, saxað (má sleppa) Salt og pipar Aðferð fyrir Lambalæri með fyllingu: Úrbeinið lærið. Blandið saman fetaosti, tómötum, furuhnetum, pestói, hvítlauk, kryddjurtum, pipar og dálitlu salti í skál. Fyllið lambalærið með blöndunni. Lokið vel fyrir með grillpinnum. Kryddið vel að utan með salti og pipar. Hitið grillið vel og slökkvið svo á öðrum brennaranum. Ef þið notið kolagrill ýtið þá kolunum til hliðar í miðjunni og setjið álbakka þar. Leggjið lærið á grindina þar sem enginn eldur er undir. Lokið grillinum og grillið lærið við meðalhita, í um 1 klukkustund, eða eftir smekk. Snúið lærinu einu sinni eða tvisvar. Takið lærið af grillinu þegar það er tilbúið og látið það standa í a.m.k 15 mínútur áður en það er skorið. þessari uppskrift að Lambalæri með fyllingu er bætt við af Sylvíu Rós þann 30.05.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|