Kókoskaka með jarðaberjarjómaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5000 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kókoskaka með jarðaberjarjóma. 4 egg 1 bolli sykur 4 matskeiðar hveiti 2 teskeiðar lyftiduft 1 ½ bolli kókosmjöl 100 grömm rifið súkkulaði 1 teskeið vanilludropar ½ lítri rjómi 1 dós jarðaber Aðferð fyrir Kókoskaka með jarðaberjarjóma: Stífþeytið egg og sykur saman. Sigtið hveitið og lyftiduftið saman. Blandið kókosmjölinu og rifnu súkkulaðinu saman við hveitið og blandið þessu síðan öllu varlega saman við eggjahræruna. Bakið í tveimur hringlaga formum við 180 gráður í um 20-50 mínútur. Þeytið hálfan líter af rjóma og stappið jarðaberin, geymið nokkur ber til að skreyta með. Hrærið rjóman og stöppuðu jarðaberin varlega saman, setjið blönduna á milli botnanna og ofan á. þessari uppskrift að Kókoskaka með jarðaberjarjóma er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|