Kjúklingur og beikonÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 8546 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklingur og beikon. 4 stórar kjúklingabringur 250 grömm beikon 1 stór laukur 4-5 gulrætur 4-5 sveppir Rjómi Salt og pipar Hvítlaukur Ostur Aðferð fyrir Kjúklingur og beikon: Skerið beikonið niður og steikið ásamt smátt brytjuðum sveppum. Kryddið með hvítlauk. Hellið 2-3 desilítrum af rjóma út á blönduna. Losið af pönnunni í skál og leggjið til hliðar meðan bringurnar eru steiktar. Skerið bringurnar í tvennt langsum og steikið þær á pönnu. Kryddið með salti, svörtum pipar og hvítlauk. Leggjið því næst bringurnar í eldfast mót og hellið beikoni og gulrótarfyllingunni yfir ásamt rjómaslettu. Það má setja rifinn ost yfir og setjið síðan inn í ofn, í 20 mínútur, við 200 gráður. Berið fram með salati og pasta. þessari uppskrift að Kjúklingur og beikon er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|