Kjúklingur í kókoskarrýÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4747 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklingur í kókoskarrý. 500 grömm kjúklingabringur Salt og pipar 2 matskeiðar olía 2 desilítrar kjúklingkraftur Kókoskarrýsósa: 4 vorlaukar 1 matskeið olía 1 1/2 teskeið karrý 2 desilítrar kókosmjólk 1 matskeið ferskur engifer, rifinn 1 hvítlauksgeiri, saxaður 1 matskeið lime eða sítrónusafi 1 teskeið sykur 2 matskeiðar sósujafnari Cirka 1 matskeið kalt vatn Salt og pipar Aðferð fyrir Kjúklingur í kókoskarrý: Brúnið kjúklingarbingurnar í 2 matskeiðum af olíu, í potti. Kryddið með salti og pipar. Hellið kjúklingakraftinum í pottinn. Látið þetta malla í cirka 20 mínútur. Snúið kjúklingnum við öðru hvoru. Takið kjúklinginn úr pottinum og látið hann standa í 5-10 mínútur, pakkað í álpappír. Sósan: Skerið vorlaukinn (geymið græna endann). Svitsið hvíta hlutan í 1 matskeið af olíu, í potti. Kryddið með karrý. Bætið smá soði, kókosmjólk, engifer, hvítlauk, limesafa og sykri í. Hrærið sósujafnaran í cirka 1 matskeið af köldu vatni og hrærið því svo í sósuna. Látið suðuna koma upp og smakkið til. Skerið kjúklinginn í sneiðar og leggjið hann á fat. Hellið sósunni yfir og skreytið með græna vorlauknum. þessari uppskrift að Kjúklingur í kókoskarrý er bætt við af Sylvíu Rós þann 25.03.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|