KartöflurúllaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3468 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kartöflurúlla. 2 kíló kartöflur 2 egg 1 pakki kryddaður smurostur (etv. með papriku) 1,5 teskeið paprikuduft 2 rauðar paprikkur 2 rifnar gulrætur Kryddjurtir eftir smekk Salt og pipar Oregnao Rifinn ostur Aðferð fyrir Kartöflurúlla: Rífið 700 grömm af kartöflum, blandið þeim saman við eggin og kryddið með salti og pipar. Smyrjið blöndunni í þunnt lag á 2 plötur og bakið við 200 gráður í 15-20 mínútur. Látið kólna. Skrælið afgangin af kartöflunum, skerið þær í teninga og sjóðið. Stappið þær saman við sumostinn, gulræturna og kryddjurtirna. Smakkið þetta til með salti, pipar og paprikudufti. Smyrjið blöndunni á kalda kartöflubotnana (3-4 cm þykkt). Rúllið upp eins og rúllutertu og geymið í kæli í nokkra tíma. Skerið 3 cm skífur af rúllunni. Leggjið þær á bökunarpappír, kryddið með oregano og rifnum ost og bakið í 10 mínútur, við 200 gráður. þessari uppskrift að Kartöflurúlla er bætt við af Sylvíu Rós þann 27.02.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|