Kahlua-kakaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 2802 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kahlua-kaka. Botn: 3/4 bollar kakó 1 bolli sjóðandi vatn 1/4 bolli Kahlua líkjör 1 2/3 bollar hveiti 1 teskeið natron 1/2 teskeið lyftiduft 1/2 teskeið salt 3/4 bollar smjör 1 1/2 bolli sykur 3 stór egg Krem: 150 grömm súkkulaði 1/2 bolli smjör 1 teskeið kaffiduft leyst upp í 1/4 bolla Kahlua líkjöri Rifsberjasulta til að smyrja á milli botnana Aðferð fyrir Kahlua-kaka: Kakan: Blandið kakói og sjóðandi vatni saman, kælið. Bætið svo Kahlua líkjöri út í. Þeytið sykur og smjör saman og bætið eggjunum í. Blandið þurrefnunum saman. Blandið til skiftis, þurrefnunum og kakóblöndunni í smjörhræruna. Bakið í 2 meðalstórum tertuformum, við 180-200 gráður þar til kökurnar fara að losna frá börmum formana. Kremið: Súkkulaðið brætt, smjörið sett út í og þeytt í. Leysið kaffiduftið upp í líkjöri og bætið því svo út í. Smyrjið rifsberjasultu á milli botnana og 1/4 af kreminu. Restinni af kreminu er smurt yfir kökuna. Ef botnarnir eru þurrir má væta í þeim með líkjöri. þessari uppskrift að Kahlua-kaka er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 12.01.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|