Humarsúpa - Uppskrift að humarsúpuÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 6 - Fitusnautt: Nei - Slög: 17797 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift að humarsúpu: 500 grömm smáhumar eða skelbrotshumar með skel 2 stórar gulrætur 1 rauð paprikka 1 laukur 4-6 fiskiteningar 1,5-2 lítar af matreiðslurjóma (má nota venjulegan rjóma) 2 matskeiðar olía (rasp olía) 1 hvítlauksgeiri Ljóst maizenamjöl eftir þörfum (gæti alveg farið upp í hálfan pakka) Aðferð: Takið utanaf humri og steikið upp úr olíu og hvítlauksgeira. Takið síðan gulrætur, lauk og paprikku (skerið allt í tvennt) og setjið í stóran pott og fyllið hann nánast að vatni. Sjóðið í 12-18 klukkustundir. Síðan er allt sigtað vel frá soðinu og soðið sett í sér pott. Teningar settir út í og maizenamjöl sett í til að þykkja súpuna, eftir smekk og síðan er rjómi settur útí og þetta látið malla í klukkutíma við mjög vægan hita (annars kemur bragð af mjölinu). Humarinn er ekki settur út í fyrr en tíu mínútum áður en bera á súpuna fram. Það er rosalega gott að hafa hvítlauksbrauð með. Þessi súpa á að vera nokkuð þykk og alveg svakalega bragðgóð. Humarsúpa - Uppskrift að humarsúpu er bætt við af Helga Magnúsdóttir þann 21.01.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|