Humaréttur sælkeransÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4499 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humaréttur sælkerans. 1 stór rauð paprika 2 meðalstórir laukar 300 grömm ferskir sveppir, skornir frekar gróft 60 grömm Ljóma smjörlíki Hvítur pipar 2-3 teskeiðar indverskt karrý (eftir smekk) 1/2 líter rjómi 400 grömm hreinn rjómaostur 1 kíló humar Aðferð fyrir Humaréttur sælkerans: Smjörlíkið brætt á pönnu. Lauk, paprikku og sveppum skellt á pönnuna, steikt við góðum hita í cirka 2 mínútur. Rjómanum hellt varlega yfir og rjómaosturinn látinn bráðna með. Kryddið með indversku karrý, salti og pipar eftir smekk. Því næst er humarinn látinn út í og látinn krauma í u.þ.b. 5 mínútur. Gott er bera fram hrísgrjón, hvítlauksbrauð eða smábrauð með þessum frábæra humarrétti. þessari uppskrift að Humaréttur sælkerans er bætt við af Elinborg Baldvinsdóttir þann 26.08.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|