Humar í gráðostasósuÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4986 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humar í gráðostasósu. 1 kíló humar 1 rauð paprika 1 bakki sveppir 1 laukur 1-2 rif hvítlaukur Sítrónupipar 1 grænmetiskraftur Salt Sojasósa Gráðostur Matreiðslurjómi Sósulitur Smjöríki til steikingar Aðferð fyrir Humar í gráðostasósu: Skelflettið humarinn hráan og leggjið í sojasósu á meðan annað er fundið til. Paprika skorin í strimla, laukur grófskorinn, hvítlauksrifin klofin og tekin úr þeim miðjan og svo eru þau maukuð og sveppirnir sneiddir. Hitið smjörlíki á pönnu, laukur, hvítlaukur og paprika sett á pönnuna og látið mýkjast, þá sveppir. Humarinn tekinn úr sojasóunni og settur út í. Kryddað eftir smekk, rjómi, teningur og gráðostur settur á pönnuna ástam sósulit og látið malla við lítinn hita, í cirka 15 mínútur. Berið fram með ristuðu brauði og fersku salati. þessari uppskrift að Humar í gráðostasósu er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|