Héraðskótelettur með ratatouille


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 2 - Fitusnautt: Já - Slög: 2466

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Héraðskótelettur með ratatouille.

2 svínakótelettur, cirka 125 grömm hver
Salt og pipar
1 teskeið provencekrydd
2 teskeiðar olía

Ratatouille:
2 stórar paprikur
1 lítill kúrbítur
1 lítið eggaldin
2 salatlaukar
3 tómatar
2-3 hvítlauksgeirar
1-2 lárviðarlauf
1 matskeið olífuolía
Ferskt basilikum

Meðlæti:
400 grömm kartöflur


Aðferð fyrir Héraðskótelettur með ratatouille:

Skerið allt grænmetið í stóra bita og blandið því saman við pressaðan hvítlauk, lárviðarlauf, olíu, salt og pipar. Setjið það á plötu með bökunarpappír. Bakið í ofni, við 225 gráður, í cirka ½ tíma. Snúið því öðru hvoru. Kryddið með basilikum þegar það er steikt.

Sjóðið kartöflurnar.

Skerið fituna af kótelettunum. Þerrið kjötið og kryddið með salti, pipar og provencekryddi. Hitið olíu á pönnu og brúnið kjötið í cirka 1 mínútu, á hvorri hlið. Lækkið undir pönnunni og steikið kóteletturnar áfram í cirka 3 mínútur á hvorri hlið.


þessari uppskrift að Héraðskótelettur með ratatouille er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.09.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 36 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Héraðskótelettur með ratatouille
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Svínakjötsuppskriftir  >  Héraðskótelettur með ratatouille