Heit ávaxtakakaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3975 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Heit ávaxtakaka. 100 grömm hveiti 80 grömm sykur 80 grömm kókosmjöl 1 1/2 teskeið lyftiduft 3 stór egg 2 appelsínur 4 epli 3 bananar 60 grömm sykur 30 grömm kókosmjöl 100 grömm suðusúkkulaði Aðferð fyrir Heit ávaxtakaka: Þeytið egg og sykur létt og ljóst. Blandið hveiti, kókosmjöli og lyftidufti í eggjamassann og hrærið vel. Hellið deginu í springform. Skerið ávexti og súkkulaði í bita. Blandið saman ávöxtum, súkkulaði, kókosmjöli og sykri og smyrjið yfir deigið. Stráið smá sykri yfir ávaxtablönduna. Bakið í um það bil 45 mínútur við 180-200 gráður. Berið fram heitt með rjóma eða ís. þessari uppskrift að Heit ávaxtakaka er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 22.12.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|