Grænmeti í ofniÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 7782 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Grænmeti í ofni. ½ kíló blanda af spergilkáli, blómkáli og gulrótum 6-8 perlulaukar, skrældir 2 desilítri hreinn fetaostur 5 matskeiðar olía 2 teskeiðar sjávarsalt Krydd t.d. grænmetiskrydd úr Ítalíu – línunni, eða annað eftir smekk Aðferð fyrir Grænmeti í ofni: Skera spergilkál, blómkál og gulrætur niður. Einnig má nota frosið grænmeti sem búið er að skera. Setið skorið grænmetið í eldfast mót ásamt perlulauknum. Hellið olíunni yfir og kryddið með salti og kryddi að eigin vali, blandið saman. Bakið grænmetið í 180°C heitum ofni í 15-20 mínútur. Vigtið grænmetið í annað form og dreifið fetaosti yfir. Setið formið aftur inn í ofninn, hækkið hitann upp í 200-220°C og bakið þar til osturinn fer að bráðna og taka lit. Þessi grænmetisréttur er góður einn og sér eða sem aukaréttur. þessari uppskrift að Grænmeti í ofni er bætt við af Sylvíu Rós þann 31.05.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|