Grænmeti í karrýÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 3152 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Grænmeti í karrý. 4-6 gulrætur 1-2 stórar nípur (pastinak) ½ sellerí 2-3 lúkur rósakál 3 laukar Hvítlaukur eftir smekk (etv. 2-8 geirar) 1-3 rauðrófur 1-2 paprikkur, gular eða rauðar Olía Karry eftir smekk Smá vatn Timjan 1-2 litlir þurrkaðir chili 1 súputeningur Salt og pipar Aðferð fyrir Grænmeti í karrý: Skrælið og hreinsið grænmetið og skerið það í jafnstóra teninga. Brennið karrýið af í olíu og skellið grænmetinu á pönnuna. Hrærið í þar til allt grænmetið hefur tekið smá lit. Bætið 1-2 bollum af vatni á pönnuna og kryddið með súputeningi, salti, pipar, chili og timjan. Setjið lok á pönnuna og látið þetta malla í cirka 40 mínútur. Berið fram með kjöti eða fisk. Einnig er gott að blanda þessu í kartöflumús og baka í ofni. þessari uppskrift að Grænmeti í karrý er bætt við af Sylvíu Rós þann 27.02.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|