Fiskisúpa - Uppskrift af fiskisúpuÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 7611 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift af fiskisúpu: 1 kíló ýsuflök, roðflett og skorin í litla bita 5 desilítrar mysa 1 ½ lítri vatn 3 fiskiteningar 100 grömm rjómaostur hreinn ( lítið box) 2 rauðar paprikur 2 grænar paprikur 6 gulrætur 10 kartöflur 3 sellerístiklar 1 blaðlaukur 2 teskeiðar fiskikrydd ½ teskeið basilikum 250 grömm rækjur Aðferð: Setjið vatn, mysu, fiskteninga og rjómaost í pott og látið suðuna koma upp. Skerið paprikur, gulrætur, kartöflur,sellerí og blaðlauk í litla bita. Látið það í pottinn og sjóðið í 15 mínútur. Kryddið með basilikum og fiskikryddi. Bætið fiskinum í pottinn og sjóðið við vægan hita í þrjár mínútur. Setjið rækjurnar í súpuna rétt áður en hún er borin fram. Kryddið með pipar og basilikum eftir smekk. Fiskisúpa - Uppskrift af fiskisúpu er bætt við af Sylvíu Rós þann 13.07.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|