CroissantÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 7453 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Croissant. 2 gömul croissant horn 100 grömm strásykur 2 matskeiðar vatn 125 ml rjómi 125 ml nýmjólk 2 matskeiðar burbon viskí 2 egg hrærð Aðferð fyrir Croissant: Hitið ofninn í 180 gráður. Rífið hornin í bita og leggið í eldfast mót. Setjið sykurinn og vatnið í pott og hrærið til að leysa upp sykurinn. Leyfið karamellunni að myndast. Þetta tekur um 3-5 mínútur. Bætið rjómanum í og því næst mjólkinni og viskíinu. Hrærið viðstöðulaust í svo að það myndist ekki kekkir. Takið pottinn af hellunni og haldið áfram að hræra. Bætið eggjunum við og hrærið vel. Hellið blöndunni yfir hornin og látið þetta bíða í dálítinn tíma. Skellið þessu í ofninn í 20 mínútur og berið fram volgt. þessari uppskrift að Croissant er bætt við af Sylvíu Rós þann 03.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|