CalzoneÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 6550 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Calzone. Pizzudeig ættlað í einn botn 1 3/4 bolli pizza prontó 100 grömm pepperoni í sneiðum 1/2 græn paprika, söxuð 100 grömm mosarellaostur, rifinn 200 grömm ricottaostur Aðferð fyrir Calzone: Skiptið deginu í fernt. Fletjið degið út í hringlaga kökur, um 20 cm í þvermál. Smyrjið 2 matskeiðum af pizza prontó á hverja köku, en ekki alveg út á brúnir. Dreifið pepproni, papriku og osti yfir helminginn af kökunni. Leggið kökuna saman og pressið brúnirnar saman. Til að hleypa gufu út þarf að skera þrjár raufar í degið að ofan. Bakið við 175 gráður í 20-25 mínútur, eða þar til fallegur litur er kominn á degið. Það má bera fram grænmeti með, ef vill. þessari uppskrift að Calzone er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 09.03.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|