Auðvelt speltbrauðÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Já - Slög: 5292 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Auðvelt speltbrauð. 5 desilítrar spelt 1 desilítri sólblómafræ eða kókosmjöl 3 teskeiðar vínsteynslyftiduft 1 1/2-2 desilítrar AB mjólk eða sojamjólk 1 1/2-2 desilítrar sjóðandi heitt vatn Aðferð fyrir Auðvelt speltbrauð: Blandið þurrefnunum saman í skál. Hellið vökvanum út í og blandið varlega saman. Á þessu stigi er hægt að setja ýmislegt fleira saman við brauðdeigið, t.d. sólþurrkaða tómata, ólífur, gulrætur, hvítlauk eða kryddjurtir. Setjið deigið í smurt brauðform og bakið í 25-30 mínútur við 200 gráður. þessari uppskrift að Auðvelt speltbrauð er bætt við af Halla Heimisdóttir þann 15.04.09. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|